VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi2
-
Hjónarúm2
-
Kojur1
-
Svefnsófi1
-
Barnaferðarúm1
LÝSING
Falleg íbúð á efri hæð með flottum þaksvölum. Íbúðin er staðsett í Villmartin/El Galan í rólegu hverfi milli Villamartin og Las Ramblas golf. Handann við hornið eru fjölmargir barir og veitingastaðir og svo er stutt göngufæri í La Fuente verslunarmiðstöðina, þar sem er einnig Mercadona og fullt af veitingastöðum. Nákvæmlega 6 mínútna akstur til Cabo Roig, strönd og 8 mínútur í Zenia Boulevard Mollið.
Rúmgóð stofa með góðum sófa sem einnig er svefsófi og opið inní eldhús sem er mjög vel búið með helstu áhöldum til matargerðar. Wifi og Lofkæling/hitun er í stofunni og báðum herbergjum. Litlar svalir eru fyrir framan stofuna með borði, stólum og markísu. Einnig eru stórar þaksvalir yfir allri íbúðinni með sófasetti, borði, stólum, gasgrilli, kolagrilli og sólbekkjum. Sameiginleg sundlaug er í sameign og bílastæði fyrir framan eignina.
Svefnherbergin eru tvö
Hjónaherbergið er með hjónarúmi, góðum fataskápum, loftkælingu og viftu í lofti. Íbúðin hentar vel fyrir 4 fullorðna og 1-2 börn.
Hitt svefnherbergið er með koju sem er tvíbreið niðri og einbreiðu rúmi fyrir ofan, fataskáp og viftu í lofti. Sængur, koddar og rúmföt fylgja.
Baðherbergi
Baðherbergi með salerni, vaski, baðkari með sturtu aðstöðu og innréttingu.
Baðhandklæði fylgja og einnig er hárblásari. Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með á ströndina.