VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi3
-
Einstaklingsrúm4
-
Hjónarúm1
-
Barnaferðarúm1
LÝSING
Gengið er inní fallega stofu með með borðstofuborði, sex stólum, 43“flatskjá og loftkælingu. Í húsinu er WiFi internet í gegnum ljósleiðara og rúmlega 120 sjónvarpstöðvar í boði, einnig er Playstation 5 leikjatölva.
Frá stofu er gengið beint út í mjög stóran flísalagðan garð sem er við húsið og snýr í suður ásamt gerfigrasi og einkasundlaug. Í garðinum er borð og stólar fyrir 6 manns, Weber gasgrill, 4 sólbekkir, stór sólhlíf, og frábær aðstaða til að sóla sig og njóta blíðunnar á Spáni. Bjart og vel búið eldhús er á jarðhæð með ísskáp með frystihólfi, uppþvottavél, örbylgjuofni, Nespresso kaffivél, brauðrist, airfryer, samlokugrilli, hraðsuðukatli og öllum helstu áhöldum til matargerðar.
Svefnherbergin eru þrjú
Svefnherbergi 1: Er á jarðhæð með tveim rúmum 90cm x 200cm sem hægt er að ýta saman og gera að hjónarúmi.
Svefnherbergi 2: Er á annari hæð með góðu hjónarúmi, fataskápum, stórri kommóðu og fallegum suðursvölum.
Svefnherbergi 3: Er á annari hæð með tveim rúmum 90cm x 200cm sem hægt er að ýta saman og gera að hjónarúmi.
Öll svefnherbergin eru með loftkælingu, sængur eru í húsinu sem gestir geta notað á haustin og vorin eða eftir þörfum.
Koddar og rúmföt fylgja og einnig er gott barnaferðarúm með sæng og kodda fyrir ungabarn.
Baðherbergin eru tvö
Á jarðhæð er baðherbergi með sturtu, salerni, vaski og þvottavél. Á 2. hæð er stórt baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu og vaski. Baðhandklæði fylgja leigu fyrir gesti og einnig eru sex strandhandklæði sem gestum er velkomið að nota.
Svalir, garður og einka sundlaug
Mjög stór einkagarður sem snýr í suður er við húsið sem er flísalagður að hluta og síðan gerfigras. Þar eru borð, stólar, sólbekkir, stór sólhlíf og Weber gasgrill og frábær aðstaða til að njóta blíðunnar á Spáni, grilla góðan mat og sóla sig í garðinum. Á annarri hæð eru svalir út frá svefnherbergi með litlu borði og tveimur stólum. Á þriðju hæð hússins eru góðar þaksvalir með útsýni til sjávar. Út frá verönd fyrir framan húsið er farið í einka sundlaug, þar er útisturta.