VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi2
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm1
-
Svefnsófi1
LÝSING
Íbúðin er á 3.hæð í Valentino Golf, blokk 3 í Villamartin hverfinu og er mjög vel búin. Fallegur garður eru inná milli húsana með þremur sundlaugum, tennisvelli og fl. sem gestir hafa aðgang að. Hverfið er mjög rólegt og gott, Villamartin Plaza torgið er í ca. 10 mín göngufjarlægð frá húsinu og þar eru frábærir veitingastaðir, barir, matvörubúð, kínabúð, apótek og fleira. Við hliðina á Villamartin Plaza er síðan klúbbhúsið fyrir Villamartin golfvöllinn svo þessi eign er tilvalin fyrir golfarana. Einnig eru margir aðrir golfvellir stutt frá hverfinu eins og Campoamor, Las Colinas og Las Ramblas. Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu með fjarstýrðum opnara.
Í stofunni er góður sófi sem einnig er svefnsófi, WiFi, loftkæling og fallegt borðstofuborð með stólum, frá stofunni er gengið út á góðar svalir. Eldhúsið er bjart og vel búið með uppþvottavél og öllum helstu áhöldum til matargerðar. Einnig eru stórar einka þaksvalir með íbúðinni með flottu útsýni yfir hverfið.
Svefnherbergin eru tvö
Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum og einnig er svefnsófi í stofunni, gistirými er því fyrir 4-6 gesti.
Hjónherbergið er með hjónarúmi og góðum fataskápum, innaf hjónaherberginu er rúmgott baðherbergi með sturtuklefa.
Gestaherbergið er með tveimur einstaklingsrúmum sem einnig má setja saman í eitt rúm og góðum fataskápum.
Bæði svefnherbergin eru með loftkælingu, sængur eru í íbúðinni sem gott er að nota á vorin og haustin.
Baðherbergin eru tvö
Tvö falleg baðherbergi eru í íbúðinni, annað er innaf hjónaherbergi. Þau eru bæði rúmgóð með salerni, vaski, sturtu og innréttingu. Baðhandklæði fylgja leigu fyrir gesti. Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með niður í garðinn og á ströndina.