VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi2
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm1
-
Svefnsófi1
LÝSING
Íbúðin er á efstu hæð í Green Hills Villamartin með góðum svölum sem snúa í norður sem eru lokaðar með gleri og einnig glæsilegum 45 fm þaksvölum og aðgengi að fallegum sameiginlegum garði með frábærri aðstöðu, í garðinum er upphituð inni sundlaug, úti sundlaug, sauna og líkamsræktarsalur. Íbúðin er mjög vel skipulögð og vel búin, WiFi, loftkæling, góð rúm og allt til alls. Matvöruverslanir og veitingastaðir eru í göngufæri og stutt að skreppa á ströndina, á laugardagsmarkaðinn, Villamartin Plaza, nokkra flotta golfvelli, La Zenia verslunarmiðstöðina og niður á göngugötuna í Cabo Roig. Einnig fylgir bílastæði í bílastæðahúsi innan garðsins með fjarstýrðu hliði sem gestir hafa aðgang að fyrir bílaleigubílinn.
Falleg björt stofa sem einnig er borðstofa og opið er inní eldhúsið. Í stofunni er góður hornsófi sem einnig er svefnsófi og snjallsjónvarp svo gestir geta td. skráð sig inná sitt NETFLIX. Frá stofu er rennihurð út á góðar svalir sem búið er að loka með gleri og nýtast sem stækkun á stofu og borðstofu. Frá stofunni er síðan stigi uppá frábærar 45 fm þaksvalir með góðri aðstöðu til að njóta blíðunnar. Eldhúsið er bjart og vel búið með ísskáp með frystihólfi, uppþvottavél, Dolce Gusto kaffivél, brauðrist, hraðsuðukatli og helstu áhöldum til matargerðar.
Svefnherbergin eru tvö
Hjónaherbergi er með hjónarúmi og góðum fataskápum og innangengt inná sér baðherbergi með sturtu.
Gestaherbergi er með tveimur einstaklingsrúmum og fataskáp.
Bæði svefnherbergin eru með loftkælingu og nýjum rúmum með vönduðum dýnum.
Sængur eru í íbúðinni sem gott er að nota á vorin og yfir vetrartímann.
Baðherbergin eru tvö
Baðherbergi er innaf hjónaherbergi með salerni, vaski, góðri sturtu og innréttingu með skúffum.
Hitt baðherbergið er með salerni, vask, góðri sturtu, innréttingu og þvottavél.
Baðhandklæði fylgja leigu fyrir gesti og einnig er hárblásari og sléttujárn.
Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með á ströndina.
Verönd - Sundlaugargarður með upphitaðri inni sundlaug, úti sundlaug, sauna og líkamsræktarsal
Frá stofu og hjónaherbergi eru rennihurðar sem opna út á svalirnar sem eru með glerlokun. Frábærar 45 fm þaksvalir eru síðan yfir íbúðinni með flottri aðstöðu þar eru borð, stólar, sólbekkir, sturta, rafmagnsgrill og hornsófi. Í sameign er æðislegur sundlaugargarður með upphitaðri inni sundlaug með nuddstútum, úti sundlaug, sturtum, sauna og líkamsræktarsal, garðurinn er í lokuðum og læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að. Þarna er frábær aðstaða til að sóla sig og slaka á eða skella sér í ræktina og njóta veðurblíðunnar á Spáni. Garðurinn er einstaklega fallegur og mjög fjölskylduvænn.
Aðrar eignir stutt frá
Við erum með fleiri íbúðir í Green Hills, Villamartin Gardens og Mirador de Villamartin sem eru við sömu götu og stutt að labba á milli. Frábær kostur ef nokkrar fjölskyldur eru að ferðast saman.