VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi2
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm1
-
Svefnsófi1
-
Barnaferðarúm1
LÝSING
Íbúðin er á 2. hæð í Sungolf Beach kjarnanum í Las Filipinas hlutanum í Villamartin með aðgengi að fallegum sameiginlegum garði með sundlaug. Íbúðin er mjög vel skipulögð og vel búin, WiFi, loftkæling, kolagrill, góð rúm og allt til alls. Sameiginlegur sundlaugargarður er í sameign með sundlaug. Matvöruverslanir og veitingastaðir eru í göngufæri og stutt að skreppa á ströndina, á markaði, Villamartin Plaza, flotta golfvelli, La Zenia verslunarmiðstöðina og niður á göngugötuna í Cabo Roig. Einnig fylgir lokuð bílageymsla með fjarstýringu sem gestir hafa aðgang að fyrir bílaleigubílinn. Við erum einnig með tvær aðarar íbúðir í sömu blokk og þessi fallega íbúð, frábær kostur ef nokkrar fjölskyldur eru að ferðast saman.
Falleg stofa sem einnig er borðstofa og opið er inní eldhúsið. Í stofunni er sófi sem einnig er svefnsófi og snjallsjónvarp með áskriftarpakka + spænskar stöðvar, einnig geta gestir skráð sig inná sitt NETFLIX. Frá stofu er rennihurð út á stórar svalir með borði, stólum, sólbekkjum og góðri aðstöðu til að njóta blíðunnar.
Eldhúsið er bjart og vel búið með ísskáp, uppþvottavél, Dolce Gusto kaffivél, brauðrist, samlokugrilli, hraðsuðukatli og helstu áhöldum til matargerðar.
Svefnherbergin eru tvö
Íbúðin er með tveimur rúmgóðum svefnherbergjum með fataskápum og loftkælingu, einnig er barnaferðarúm.
Hjónaherbergið er með hjónarúmi og góðum fataskápum.
Gestaherbergi eru á gangi innaf stofunni með tveimur einstaklingsrúmum.
Bæði svefnherbergin eru með loftkælingu og nýjum rúmum með vönduðum dýnum.
Sængur eru í íbúðinni sem gott er að nota á vorin og yfir vetrartímann.
Baðherbergi
Baðherbergi er með salerni, vaski, góðri sturtu og innréttingu með skúffum.
Baðhandklæði fylgja fyrir gesti og einnig er hárblásari.
Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með á ströndina.
Svalir og sundlaugargarður
Frá stofu er rennihurð sem opnar út á stórar flísalagðar svalir með fallegu útsýni, þar eru sólbekkir, borð og stólar. Þarna er frábær aðstaða fyrir gesti til að borða úti og njóta blíðunnar.
Í sameign á milli húsanna er sundlaugargarður með sundlaug í lokuðum og læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að, þar eru sundlaugar og sturtur. Þarna er frábær aðstaða til að sóla sig og njóta veðurblíðunnar á Spáni.