VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi2
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm1
-
Svefnsófi1
-
Barnaferðarúm1
LÝSING
Íbúðin er í Villamartin Gardens kjarnanum sem samanstendur af níu fjölbýlishúsum sem allar hafa aðgengi að þremur sundlaugum, þar af er ein upphituð yfir vetrartímann. Íbúðin er á jarðhæð og er mjög vel búin, WiFi, gasgrill, loftkæling og allt til alls. Rúmgóð 48fm verönd er beint út frá stofu og þaðan er hægt að ganga beint niður í sundlaugargarðana. Matvöruverslanir og veitingastaðir eru í göngufæri og stutt að skreppa á ströndina, á markaði, Villamartin Plaza, á 4 flotta golfvelli, í La Zenia mallið og niður á göngugötuna í Cabo Roig.
Falleg stofa sem einnig er borðstofa og opið er inní eldhúsið, í stofunni er góður sófi sem einnig er svefnsófi, Smart TV og fallegt borðstofusett. Frá stofu er rennihurð út á frábæra 48fm flísalagða verönd með fallegum húsgögnum og góðri aðstöðu, veröndin er með glerlokun að hluta. Eldhúsið er bjart og vel búið með ísskáp, neysluvatnskrana, uppþvottavél, kaffivél, blandara, samlokugrilli, brauðrist, hraðsuðukatli og helstu áhöldum til matargerðar. Þvottahús er innaf eldhúsi með þvottavél og smá geymslu.
Svefnherbergin eru tvö
Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum og í stofu er svefnsófi og því býður íbúðin uppá gistirými fyrir 6 manns, einnig er barnaferðarúm.
Hjónherbergið er með hjónarúmi og góðum fataskápum og innangent er inná baðherbergi með sturtu, hitt herbergið er með tveimur einstaklingsrúmum og góðum fataskápum. Bæði svefnherbergin eru með loftkælingu og nýjum rúmum. Sængur eru í íbúðinni til að nota á vorin og haustin.
Baðherbergin eru tvö
Innaf hjónaherbergi er baðherbergi með salerni, vaski, góðri sturtu og innréttingu með skúffum.
Hitt baðherbergið er til vinstri þegar komið er inn í íbúðina, þar er salerni, vaskur, góð sturta og skúffur.
Baðhandklæði fylgja leigu fyrir hvern gest og einnig er hárblásari.
Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með á ströndina.
Verönd
Hægt að ganga út á flísalagða 48fm verönd frá svefnherbergi, stofu og þvottahúsi, hún snýr í suður og þar eru sólbekkir, útihúsgögn og gasgrill, veröndin er með glerlokun að hluta.
Þarna er frábær aðstaða fyrir gesti til að borða úti og njóta blíðunnar. Frá verönd er gengið niður nokkrar tröppur að sundlaugargarðinum sem er á milli húsana.
Sundlaugargarður með þremur sundlaugum þar af ein yfirbyggð og upphituð á vetrartíma
Í sameign inni á milli húsanna er sundlaugargarður með þremur sundlaugum í lokuðum og læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að. Þar eru þrjár sundlaugar, barnalaug, leiksvæði fyrir börn, líkamsræktartæki og sturtur. Þarna er frábær aðstaða til að sóla sig og njóta veðurblíðunnar á Spáni. Garðurinn er einstaklega fallegur og mjög fjölskylduvænn. Stór og flott sundlaug er sunnanmegin við íbúðina en samt ekki alveg fyrir framan svo gestir verða ekki fyrir ónæði frá lauginni á veröndinni. Upphitaða laugin er norðanmegin við húsið, hún er yfirbyggð og er hituð upp á vetrartíma.
Aðrar eignir stutt frá
Við erum einnig með aðrar íbúðir í Villamartin Gardens kjarnanum, í Mirador de Villamartin og Green Hills sem eru við sömu götu og stutt að labba á milli. Frábær kostur ef nokkrar fjölskyldur eru að ferðast saman.