VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
7 manns -
Svefnherbergi3
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm1
-
Kojur1
-
Barnaferðarúm1
LÝSING
Raðhús í Lomas de Cabo Roig hverfinu. Stofa sem einnig er borðstofa og opið er inní eldhúsið. Í eldhúsinu eru öll helstu áhöld til matargerðar. Borðbúnaður er fyrir 8 manns og einnig er matarstóll fyrir ungabörn.
Út úr eldhúsi er hægt að ganga út í bakgarðinn við húsið sem er flísalagður, þar er gasgrill.
Svefnherbergin eru þrjú og öll á sömu hæð
Herbergi nr. 1 er með hjónarúmi, loftkælingu og skápum með skúffum.
Herbergi nr. 2 er með tveimur einstaklingsrúmum, loftkælingu og skápum með skúffum.
Herbergi nr. 3 er með þremur kojum og hentar því vel fyrir allt að 3 börn.
Sængur, koddar og rúmföt fylgja og einnig er barnaferðarúm fyrir ungabarn.
Baðherbergin eru tvö
Á 1. hæð er lítið baðherbergi með salerni, vaski og sturtu.
Á 2. hæð er baðherbergi með salerni, vaski, baðkari með sturtu og hillum.
Baðhandklæði fylgja húsinu og einnig er hárblásari og sléttujárn, en gestir eru beðnir um að koma með sín eigin handklæði til sólbaða og til að taka með á ströndina.
Svalir og sundlaugargarður
Á þriðju hæð hússins eru þaksvalir með útsýni til sjávar. Stór sameignilegur sundlaugargarður er inná milli húsanna, þar er sundlaug með barnalaug og sturtur, þangað er hægt að fara og slaka á við sundlaugina.
Í húsinu eru bækur, spil, leikföng, barnaleikföng fyrir strandferðirnar sem gestir geta notað í fríinu.
