VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
7 manns -
Svefnherbergi3
-
Einstaklingsrúm4
-
Hjónarúm1
-
Svefnsófi1
LÝSING
Glæsileg 3 svefnherbergja íbúð á jarðhæð í hinum glæsilega Flamenca Village kjarnanum í Playa Flamenca. Íbúðin er öll hin glæsilegasta með öllum þeim búnaði sem þarf til að gera dvölina sem ánægjulegasta, í göngufjarlægð frá ströndinni sem og allri helstu þjónustu. Í kjarnanum eru þrjár sundlaugar, þar af ein upphituð og ein með sundlaugarbar. Það eru tvær barnalaugar, gosbrunna leiksvæði og barna leikvöllur. Þá eru á sundlaugarsvæðunum fjórir pottar (jacuzzi). Sólbekkir og sólhlífar eru við sundlaugarnar. Vel búin líkamsrækt er staðsett í skemmtilegu umhverfi.
La Zenia Boulevard mollið er í göngufjarlægð og fullt af flottum golfvöllum stutt frá. Íbúðinni fylgir bílastæði í bílastæðahúsi.
Falleg stofa sem einnig er borðstofa og opið er inní eldhúsið sem er vel búið með helstu áhöldum til matargerðar. Frá stofu er rennihurð út á veröndina sem er mjög stór með borði, stólum, rafmagnsgrilli og góðri aðstöðu til að njóta blíðunnar.
Svefnherbergin eru þrjú
Íbúðin er með þremur rúmgóðum svefnherbergjum. Hjónaherbergið er með hjónarúmi, góðum fataskápum og innangengt er inná baðherbergi með sturtu.
Tvö gestaherbergi bæði með tveimur einstaklingsrúmum og fataskápum. Einnig er svefsófi í stofunni fyrir einn gest.
Baðherbergin eru tvö
Innaf hjónaherbergi er baðherbergi með salerni, vaski, góðri sturtu og innréttingu með skúffum. Hitt baðherbergi er með salerni, vask, góðri sturtu og innréttingu með skúffum.
Baðhandklæði fylgja fyrir gesti og einnig er hárblásari.Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með á ströndina.