VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi2
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm1
-
Barnaferðarúm1
LÝSING
Falleg endaíbúð á jarðhæð sem er staðsett í fjölskylduvænum íbúðakjarna í Villamartin hverfinu. Góð afgirt stór einkalóð er við húsið með frábærri sólbaðsaðstöðu og sundlaugagarðurinn er í lokuðum og læstum garði fyrir aftan húsið og því öruggur fyrir börnin. Stutt er í helstu þjónustu eins og matvöruverslun, veitingastaði. Frábærir golfvellir eru innan við 5-10 mínutna akstri frá húsinu. Aðeins 5-10 mínútna göngutúr að Aldi súpermarkaðinum þar sem er auk þess kaffihús og Kínamarkaður
Íbúðin er á jarðhæð og gengið er inn í rúmgóða stofu með sófa, sjónvarpi, loftkælingu og viftu í loftinu. Eldhús með helstu áhöldum og tækjum. Fyrir framan og aftan íbúðina er flísalögð verönd og stór sérgarður með útihúsgögnum.
Svefnherbergin eru tvö
Hjónaherbergið er með hjónarúmi, loftkælingu, viftu i lofti og góðum fataskápum. Gestaherbergi með tveimur einstaklingsrúmum, loftkælingu, viftu i lofti og fataskápum.
Ungbarnaferðarúm og hár barnamatarstóll er í íbúðinni. Hægt að koma fyrir aukarúmgrind með dýnu fyrir tvo sem er í geymslunni.
Baðherbergin eru tvö
Tvö baðherbergi, annað með sturtu og hitt með baðkari með sturtuaðstöðu, salerni, vaski og innréttingu.
Baðhandklæði fylgja leigu, og einnig er hárblásari í húsinu.