VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi3
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm2
-
Barnaferðarúm1
LÝSING
Fallegt einbýlishús með einkasundlaug á Vistabella golfvallasvæðinu. Í hverfinu er matvöruverslun, veitingastaðir, barir og Vistabella golfvöllurinn. Húsið er búið öllum nútímaþægindum og gisting er fyrir 6 manns, ásamt barnaferðarúmi. Komið er inní bjarta stofu með borðstofu og opið er inní eldhúsið sem er vel búið og öll helstu áhöld til matargerðar. Í stofunni er góður sófi, hægindastólar og snjallsjónvarp svo gestir geta skráð sig inná sínar streymisveitur. Frá stofu og eldhúsi eru rennihurðar út á stóra verönd með borði, stólum, sófasetti, sólbekkjum og góðri aðstöðu til að njóta. Einkabílastæði er innan lóðar.
Svefnherbergin eru þrjú
Á aðalhæð er rúmgóð hjónasvíta með vönduðu hjónarúmi, fataskáp og loftkælingu, innangengt inná sér baðherbergi og rennihurð til að ganga út í garðinn. Á efri hæð eru tvö svefnherbergi, rúmgóð hjónasvíta með vönduðu hjónarúmi, fataskáp og loftkælingu, innangengt inná sér baðherbergi og rennihurð til að ganga út á svalirnar. Þriðja svefnherbergið er með tveimur einstaklingsrúmum, fataskáp, loftkælingu og innangengt inná sér baðherbergi og rennihurð til að ganga út á svalirnar
Baðherbergin eru þrjú og eitt gestasalerni
Þrjú rúmgóð baðherbergi með salerni, vask, góðri sturtu og innrétting eru í húsinu ásamt gestasalerni á fyrstu hæð.
Baðhandklæði fylgja fyrir gesti og hárblásari er í húsinu. Gestir eru beðnir um að koma með sín eigin strandhandkæði til að taka með á ströndina.
Frábær garður með einkasundlaug og púttvelli
Frá stofu og eldhúsi eru rennihurðar til að ganga út í glæsilegan garð með einkasundlaug og vönduðum útihúsgögnum. Hér færðu alvöru frí þar sem þú getur notið sólarinnar, slakað á við sundlaugina og haft nægt pláss fyrir alla. Einnig er skemmtilegur púttvöllur á lóðinni fyrir golfarana.
