VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi3
-
Einstaklingsrúm4
-
Hjónarúm1
LÝSING
Einbýlishús með einkasundlaug í Las Filipinas hverfinu í Villamartin.
Komið er inná aðalhæðina með rúmgóðri stofu og tveimur borðstofum og þaðan er gengið inní eldhúsið. Frá stofunni eru svalir með matarborði og sex stólum, þaðan eru tröppur niður í sundlaugargarðinn við húsið sem er flísalagður af hluta, þar er einkasundlaug, tveir sólbekkir, gasgrill og pergóla. Húsinu fylgir einnig einkabílastæði innan garðsins.
Svefnherbergin eru þrjú
Svefnherbergið á aðalhæðinni er með einstaklingsrúmi og útdraganlegu gestarúmi þar undir, loftkælingu, sjónvarpi, skrifborði/vinnuaðstöðu og stórum fataskápum.
Á efri hæð eru tvö svefnherbergi, annarsvegar hjónaherbergi með stóru hjónarúmi, loftkælingu, sjónvarpi og fataskápum og hinsvegar svefnherbergi með einstaklingsrúmi og útdraganlegu gestarúmi þar undir, lofkælingu, sjónvarpi, skrifborði/vinnuaðstöðu og stórum fataskápum. Frá efri hæð er útgengt út á svalir með sófasetti og pergólu.
Baðherbergin eru tvö
Á aðalhæðinni er baðherbergi með salerni, vaski, sturtu og þvottavél. Annað baðherbergi er á efri hæð, þar er salerni, vaskur og baðkar með sturtuaðstöðu. Baðhandklæði fylgja fyrir gesti og hárblásari er í íbúðinni. Gestir eru beðnir um að koma með sín eigin strandhandkæði til að taka með á ströndina.
