VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
4 manns -
Svefnherbergi2
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm1
LÝSING
Íbúðin er á 6. hæð og er 68fm með góðu alrými þar sem eldhús flæðir yfir í borðstofu og stofu og þaðan er útgengt á rúmgóðar svalir. Þær snúa út í garðinn og vísa í vestur þannig að sólin er þar komin uppúr hádegi yfir sumarið en aðeins seinna að vori og hausti. Frábært að njóta kvöldsólar í ósnortnu útsýni. Á svölunum er geymsla með þvottvél og þvottagrindum. Eldhúsið er bjart og vel búið með ísskáp, uppþvottavél, kaffivél, brauðrist, hraðsuðukatli og helstu áhöldum til matargerðar.
Svefnherbergin eru tvö
Hjónaherbergið er með hjónarúmi með vandaðri dýnu, góðum fataskápum og innangengt er inná baðherbergi með sturtu.
Gestaherbergið er með tveimur einstaklingsrúmum og fataskápum.
Bæði svefnherbergin eru með loftkælingu og sængur eru í íbúðinni sem gott er að nota á vorin og yfir vetrartímann.
Baðherbergin eru tvö
Innaf hjónaherbergi er baðherbergi með salerni, vaski, sturtu og innréttingu.
Hitt baðherbergið er með salerni, vaski, baðkar með sturtuaðstöðu og innrétting.
Baðhandklæði fylgja leigu fyrir gesti og einnig er hárblásari. Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með á ströndina eða í garðinn.
Nær umhverfið og veitingastaðir
San Miguel de Salinas er spænskur bær við suður Costa Blanca. Bærinn er byggður á hæð og nýtur útsýnis yfir Torrevieja saltvötnin og ótal sítrónu- og appelsínuakra í grenndinni. Staðsetningin er mjög með góðum dýnum og öllu sem þarf til.góð og íbúðin staðsett nálægt nokkrum golfvöllum, svo sem Las Colinas, La Finca, Ramblas, Campoamor og Villamartín og býður uppá sjarma miðjarðarhafsþorpsins. Njóttu vikumarkaðarins, heimsæktu hellana í bænum og taktu þátt í hátíðum sem haldnar eru reglulega. Allt þetta, ásamt frábæru framboði þjónustu þar sem er apótek og heilsugæsla sem opin eru 24 tíma á dag.
Veitingstaðir er fjölmargir og þeirra frægastur er La Cueva en það eru einnig margir góðir í göngufæri eins og Golden Curry, Pizza Basta og fleiri. Það er um 10mín akstur í La Zenia og á strendurnar þar í nágrenni en einnig er stutt til Torrevieja.
