VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
4 manns -
Svefnherbergi2
-
Hjónarúm2
LÝSING
Við fáum myndir af íbúðinni í mars 2026 - þegar búið er að standsetja hana.
Hægt er að skoða myndir af íbúðum 87, 123 og 145 á vefnum okkar til að sjá sambærilegar eignir.
Íbúðin er nr. 72 í Oasis Beach IV kjarnanum sem er beint á móti La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðinni.
Íbúðin er mjög vel skipulögð og vel búin, WiFi, loftkæling, góð rúm og allt til alls. Matvöruverslanir og veitingastaðir eru í göngufæri og stutt að skreppa á ströndina, Laugardagsmarkaðinn, fjölmarga golfvelli og yfir í La Zenia verslunarmiðstöðina. Íbúðinni fylgir einnig bílastæði í bílakjallara.
Eldhúsið er bjart og vel búið með ísskáp, uppþvottavél, kaffivél, brauðrist, hraðsuðukatli og helstu áhöldum til matargerðar. Falleg björt stofa sem einnig er borðstofa og opið er inní eldhúsið. Í stofunni er góður sófi og snjallsjónvarp svo geta gestir t.d. skráð sig inná sitt NETFLIX eða aðrar streymisveitur.
Frá stofu er rennihurð út á svalir sem snúa í suður og þaðan er stigi uppá þaksvalir sem eru yfir allri íbúðinni.
Svefnherbergin eru tvö
Hjónaherbergið er með hjónarúmi, góðum fataskápum og innangengt er inná baðherbergi.
Gestaherbergið er einnig með hjónarúmi og fataskápum.
Bæði svefnherbergin eru með loftkælingu og sængur eru í íbúðinni sem gott er að nota á vorin og yfir vetrartímann.
Baðherbergin eru tvö
Innaf hjónaherbergi er baðherbergi með salerni, vaski, sturtu og innréttingu með skúffum.
Hitt baðherbergið er með salerni, vaski, baðkar með sturtuaðstöðu og innrétting með skúffum.
Baðhandklæði fylgja leigu fyrir gesti og einnig er hárblásari. Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með á ströndina.
Svalir, þaksvalir, sundlaugargarður og leiksvæði fyrir börnin
Frá stofu eru rennihurðar sem opna út svalir og þaðan er gengið upp stiga uppá rúmgóðar þaksvalir með útihúsgögnum. Þarna er frábær aðstaða fyrir gesti til að borða úti og njóta blíðunnar. Í sameign er sundlaugargarður með sundlaug, sturtum, leiksvæði fyrir börnin, borðtennisborði og mjög flottu opnu svæði í lokuðum og læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að. Þarna er góð aðstaða til að sóla sig og njóta veðurblíðunnar á Spáni, garðurinn er einstaklega fallegur og mjög fjölskylduvænn.
